Í Aðventkirkjunni komum við saman til að lofa Guð, kynnast orði hans og njóta samverunnar. Allir eru hjartanlega velkomnir. At the Adventist Church we come together to praise God, explore His Word, and enjoy fellowship. Everyone is warmly welcome.
Laugardaginn 10. október fögnum við 120 ára afmæli safnaðarins og 100 ára afmæli kirkjubyggingarinnar okkar við Ingólfsstræti 19 í Reykjavík undir þemanu „Á erindi – þá og nú“. Í stað hefðbundinnar dagskrár á Selfossi hittumst við öll í viðamikilli hátíðardagskrá sem spannar allan hvíldardaginn: On Saturday, October 10th, we celebrate the 120th anniversary of the congregation and the 100th anniversary of our church building at Ingólfsstræti 19 in Reykjavík under the theme “Relevant – Then & Now”. Instead of services in Selfoss, we gather together for a comprehensive jubilee program spanning the entire Sabbath:
Hátíðleg morgunsamkoma þar sem við fögnum skírn þeirra sem tekið hafa ákvörðun í kjölfar almennra samkomna í Reykjavík, Hafnarfirði og á Selfossi. Festive morning service celebrating baptisms following public meetings in Reykjavík, Hafnarfjörður, and Selfoss.
Sameiginlegur málsverður og ljúft samfélag í Suðurhlíðarskóla. Shared lunch and warm fellowship together at Suðurhlíðarskóli.
Ljúffeng afmæliskaka og notaleg samvera þar sem við gleðjumst saman yfir tímamótunum. Delicious anniversary cake and warm fellowship as we celebrate this milestone together.
Kórar sem hafa átt sér heimili í kirkjunni í gegnum tíðina koma fram, ásamt ávörpum og kveðjum. Featuring choirs that have called the church home throughout the years, along with greetings and remarks.
Súpa og brauð í notalegu og afslöppuðu samfélagi. Soup and bread dinner in warm, relaxed fellowship.
Kvölddagskrá í umsjón sprotakirkjunnar Shuv, þar sem skírn mun fara fram. Evening service led by Shuv church plant, including baptism ceremony.
Hvort sem þú hefur verið hluti af söfnuðinum í mörg ár, átt minningar tengdar kirkjunni eða vilt einfaldlega fagna með okkur, þá ertu hjartanlega velkominn þegar við þökkum fyrir fortíðina og horfum saman til framtíðar. – Aðventkirkjan í Reykjavík Whether you have been part of the congregation for many years, hold memories connected to the church, or simply want to celebrate with us, you are warmly welcome as we give thanks for the past and look forward to the future together. – Adventist Church in Reykjavík
Við bjóðum öllum hjartanlega að taka þátt í opnum samkomum og sérstakri fyrirlestraröð í haust. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. We warmly welcome everyone to join our open gatherings and special lecture series this autumn. Admission is free and open to all.
Eiga spádómar Biblíunnar erindi við okkur í dag? Do Bible Prophecies Speak to Us Today?
Í heimi sem tekur hröðum breytingum leita margir svara um framtíðina. Í þessum opna fyrirlestri er kafað í tímabær málefni og spádóma Ritningarinnar með skýrum og uppbyggjandi hætti. Neville Neveling flytur erindi sem veita von, innblástur og dýpri skilning á samtímanum. In a rapidly changing world, many are searching for answers about the future. This open lecture explores timely topics and biblical prophecies in a clear and uplifting way. Neville Neveling presents messages that inspire hope, insight, and understanding.
Við erum hluti af alþjóðlegri fjölskyldu Kirkju sjöunda dags aðventista og miðlum lifandi trú, von og kærleika í Jesú Kristi. We are part of the global family of the Seventh-day Adventist Church, sharing living faith, hope, and love in Jesus Christ.
Söfnuðurinn á Selfossi leggur áherslu á að skapa hlýlegt, fjölskylduvænt umhverfi þar sem fólk getur kynnst kærleika Guðs og fundið stuðning í sínu daglega lífi. Við leggjum áherslu á biblíunám, heilbrigðan lífsstíl og virka samfélagsþjónustu. Our congregation in Selfoss focuses on creating a warm, family-friendly environment where individuals can experience God's love and find support for daily life. We emphasize Bible study, healthy living, and active community service.
Hvort sem þú ert að leita að andlegu heimili, hefur áhuga á að kynna þér Biblíuna betur, eða vilt einfaldlega eignast góða vini, þá ertu innilega velkomin(n) til okkar. Whether you are looking for a spiritual home, interested in learning more about the Bible, or simply want to make good friends, you are warmly welcome to join us.
Allir gestir eru velkomnir Every visitor is welcome
Trú byggð á Ritningunni Faith built on Scripture
Prestur Kirkju Sjöunda dags aðventista í Árnesi og á Akureyri Pastor of the Seventh-day Adventist Church in Árnes and Akureyri
Prestur & Safnaðarhirðir Pastor & Minister
„Markmið okkar er að feta í fótspor frelsara okkar, Jesú Krists, með því að þjóna fólki eins og hann þjónaði.“ “Our goal is to walk in the footsteps of our Savior, Jesus Christ, by serving people just as He served.”
Ég heiti Jóel Ævar Matchett og er prestur Kirkju Sjöunda dags aðventista í Árnesi og á Akureyri. My name is Jóel Ævar Matchett and I am the pastor of the Seventh-day Adventist Church in Árnes and Akureyri.
Ég ólst upp á Laugum í Reykjadal, þar sem ég bjó með föður mínum, Jóni Iain Peter Matchett, sem var enskukennari við Laugaskóla á árunum 2002–2012. Við sóttum alltaf aðventkirkjuna á Akureyri og þar eignaðist ég ævilanga vini. I grew up at Laugar in Reykjadalur, where I lived with my father, Jón Iain Peter Matchett, who was an English teacher at Laugaskóli from 2002 to 2012. We always attended the Adventist church in Akureyri, where I made lifelong friends.
Síðar flutti ég til Kópavogs, þar sem ég stundaði nám í listnámi og smíði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Mér hefur alltaf þótt gaman að skapa og vinna með höndunum og því fannst mér ég falla vel inn í hóp list- og smíðanema. Later, I moved to Kópavogur, where I studied art and carpentry at Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. I have always loved creating and working with my hands, and felt right at home among fellow art and carpentry students.
Eftir að hafa lokið námi og starfað um tíma fór ég í frekara nám til Danmerkur, þar sem ég lærði byggingafræði í Óðinsvé. Þar kynntist ég eiginkonu minni, sem bjó á sömu heimavist og ég og stundaði nám í læknisfræði. After completing my studies and working for a time, I went to Denmark for further education, where I studied architectural technology and construction management in Odense. There I met my wife, who lived in the same student residence and was studying medicine.
Á meðan ég stundaði nám í Danmörku ræddi ég oft við föður minn, sem sagði mér frá því að sífellt vantaði fleira fólk til að halda starfi aðventkirkjunnar gangandi. Ég fór þá að biðja til Guðs og spurði hann hvers vegna hann sendi ekki fleira fólk til starfa. Það var þá sem ég upplifði að Guð kallaði mig til prestsþjónustu. Ég tók þá ákvörðun að fara í prestnám. While studying in Denmark, I often spoke with my father, who told me that more workers were continually needed to keep the church's ministry going. I began praying to God, asking Him why He didn't send more people to serve. It was then that I felt God calling me to pastoral ministry. I made the decision to pursue pastoral studies.
Ég nýtti BA-gráðu mína í byggingafræði sem grunn að MA-námi mínu í guðfræði. Eftir að konan mín lauk læknanámi sínu fluttum við hjónin, ásamt tveimur dætrum okkar, aftur til Íslands í janúar 2026. Þar hef ég síðan starfað sem prestur á vegum stjórnar Kirkju Sjöunda dags aðventista á Íslandi. I used my Bachelor's degree in architectural technology as a foundation for my Master's degree in theology. After my wife completed her medical studies, our family—along with our two daughters—moved back to Iceland in January 2026. Since then, I have been serving as a pastor on behalf of the Seventh-day Adventist Church in Iceland.
Markmið okkar er að feta í fótspor frelsara okkar, Jesú Krists, með því að þjóna fólki eins og hann þjónaði. Við viljum mæta þörfum fólks og leitast við að það fái að sjá hver Jesús er, upplifa kærleika hans og njóta þess styrks, vonar og andlega stuðnings sem hann býður hverjum og einum. Our goal is to walk in the footsteps of our Savior, Jesus Christ, by serving people just as He served. We desire to meet people's needs and help them see who Jesus is, experience His love, and enjoy the strength, hope, and spiritual support He offers to everyone.
Við viljum einnig bjóða fólki að kynnast Biblíunni betur og sjá hvar við stöndum í tímans rás. We also warmly invite people to get to know the Bible better and see where we stand in the stream of time.